Bækur, Barnabækur
Smákon og Hákon
995 kr.
Eldhúsálfurinn Smákon er uppgefinn eftir hrekki dagsins og ákveður að leggja sig í ferðatösku. Skyndilega er töskunni lokað og Smákon fær að kanna heiminn utan hússins í fyrsta sinn.
Mannfólkið ber Smákon óafvitandi með sér í sumarbústaðinn sinn þar sem álfurinn lendir í ýmsum hremmingum en eignast líka nýja og óvænta vini, m.a. tröllið Hákon. Góðir vinir geta nefnilega verið af öllum stærðum og gerðum.
Geta þeir hjálpað Smákoni að forðast stóra, loðna skrímslið?
Og hvers vegna vill fólk láta sjóða sig í potti?
Hér er komið sjálfstætt framhald af sögu Karls Jóhanns Jónssonar um eldhúsálfinn Smákon, en höfundurinn myndskreytir einnig söguna af mikilli list.
Availability: In stock
Related products
-
Hvolpalíf
1.995 kr. -
Smákon
995 kr. -
Jólasveinar þá og nú
1.990 kr. -
Rebbi er svangur – þýska
1.490 kr.


Verslun – Skemmuvegur 6 


